The Salt Fish Centre  

Saltfisksetur Íslands í Grindavík 2002


risastækkanir / big images

Mjög áhrifaríkt getur verið að hafa stórar ljósmyndir sem bakgrunn fyrir muni, gínur eða sviðsetningar. Hér á landi er hægt að fá myndir skannaðar og prentaðar út á pappír og límdar á plötur (foam, pvc, ál eða annað efni eftir stærð). Mesta breidd í gæðaprentun án samskeyta er um 150 cm, t.d. hjá MERKINGU EHF sem sá m.a. um útprentun mynda í Íþróttasafnið á Akranesi, Samgöngusafnið í Skógum og að hluta í Saltfisksetrið í Grindavík.

Vilji maður stærri myndir án samskeyta eða gæðamyndir prentaðar á textíl er óhætt að mæla með BIG IMAGE SYSTEMS AB í Svíþjóð sem er með einhvern stærsta prentara í Evrópu. Þeir geta prentað á hvaða dúk sem er myndir sem eru 12 m breiðar og 50 metrar á lengd, án samskeyta! Slík baktjöld henta t.d. í leikhús og upptökuver. LIST & SAGA hefur mjög góða reynslu af samskiptum við BIG IMAGE og JÓHANNES LONG, ljósmyndara, sem er umboðsaðili þeirra á Íslandi.

Stækkanir frá BIG IMAGE voru t.d. á menningarborgasýningunni Lífið við sjóinn sem ferðaðist á milli borga í Evrópu 2000-2001, en myndir á textíl henta að sjálfsögðu vel í ferðalög. Myndir frá BIG IMAGE má sjá í Saltfisksetrinu í Grindavík, þar er stærsta myndin 5 x 7,5 m eða 37,5 fm.


big images

Large photographs can be very effective as a background for artifacts, costumes and small sets, they give the feeling of atmosphere and period, specially when printed on fine canvas or other textiles. LIST & SAGA has often used and strongly recommends the excellent services of BIG IMAGE SYSTEMS AB in Sweden, represented in Iceland by the photographer JÓHANNES LONG, when extra large backgrounds of quality are needed.

Maritime Museum of Iceland  

Ísland og hafið, Hafnarhúsi 1995

Skógar Museum Centre  

Samgöngur á Íslandi, Skógasafn 2002

Sýning SVFÍ 1998. Myndin skýrir hvernig björgunarstóllinn er notaður  

Sýning SVFÍ 1998. Myndin skýrir hvernig björgunarstóllinn er notaður

Leiðin til lýðveldis 1994. Bakgrunnsmynd  

Leiðin til lýðveldis 1994. Bakgrunnsmynd

Jöklasýning á Höfn. Bakgrunnsmynd  

Jöklasýning á Höfn. Bakgrunnsmynd

Jöklasýning á Höfn. Bakgrunnur við uppsetningu á safngripum  

Jöklasýning á Höfn. Bakgrunnur við uppsetningu
á safngripum

Á Njáluslóð, Sögusetrið á Hvolsvelli  

Á Njáluslóð, Sögusetrið á Hvolsvelli

Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri. Gunnar og Danmörk  

Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri. Gunnar og Danmörk

Heimastjórn 100 ára 2004. Stórir borðar  

Heimastjórn 100 ára 2004. Stórir borðar

Gestastofa Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls á Hellnum. Mynd af  
Snæfellsjökli 4 x 12 m  

Gestastofa Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls á Hellnum.
Mynd af Snæfellsjökli 4 x 12 m

Anddyri Saltfiskseturs í Grindavík  

Anddyri Saltfiskseturs í Grindavík


Víkin - sjóminjasafn. Bakgrunnsmynd sem tengist uppstillingu á gólfinu  

Víkin - sjóminjasafn. Bakgrunnsmynd sem tengist
uppstillingu á gólfinu

Forsíða / Home

Björn G. Björnsson - sýningahönnun - Engjaseli 41 - 109 Reykjavík - gsm 892 8441 - netfang: leikmynd@leikmynd.is